1. Kyssa
konuna ekki nóg
Góður og langur koss er stór
hluti af forleiknum. Ef þú ert að flýta þér það mikið að þú
gleymir að sinna kossahlutanum er líklegt að þú náir ekki að
æsa hana nóg upp.
2. Blása inn í
eyrað á konunni
Það er greinilega einhver gróusaga í
gangi um að konur elski að láta blása í eyrað á sér. Þetta er lygi.
Tunga sem sleikir eyrnasnepilinn blíðlega er aftur á móti allt
annað mál!
3. Eru
órakaðir
Við getum alveg viðurkennt að órakaðir menn geta verið sexý á götum
úti. En prófaðu að nudda sandpappír á innanverð lærin eða á hökuna.
Húðin mun sennilega flagna og ekki sérlega þægilegt.
4. Klemma
brjóstin á konunni
Við skulum fá það á hreint að
konubrjóst eru ekki bolludeig sem á að hnoða, eða melóna sem þarf
að þrýsta á til að athuga hvort hún sé orðin nógu þroskuð til að
borða. Karlmenn! Farið gætilega með brjóstin á okkur og einbeitið
ykkur frekar að geirvörtunum.
5. Bíta í
geirvörturnar
Þegar menn sleikja eða sjúga
geirvörturnar er það yfirleitt yndislegt. En þegar varnarlausar
geirvörturnar verða að naghring er það ekki svo yndislegt
lengur.
6. Snúa uppá
geirvörturnar
Í guðanna bænum hættið að snúa uppá
geirvörturnar á okkur eins og þið séuð að stilla útvarpið í bílnum.
Geirvörturnar okkar eru ekki takkar.
7. Gleyma
ákveðnum líkamshlutum
Það finnast fleiri líkamshlutar á
konum en brjóst og undirstell. T.d. axlir, háls, hryggur og
rass.
8. Hjálpa
konunni ekki úr fötunum
Ekki bara liggja við hliðina á
konunni með hendina niðri í nærbuxunum hennar. Ef að þú virkilega
vilt tæla hana, hjálpaðu henni þá úr fötunum.
9. Eiga ekki
smokka
Maðurinn kemur með okkur heim. Og klæðir sig í
smokk. Svoleiðis er það bara...
10. Ráðast á
snípinn
Gjörið svo vel að umgangast snípinn með virðingu. Ekki þrýsta, snúa
eða sjúga hann. Reynið frekar að nudda gætilega í kringum
snípinn.
11. Taka
pásur
Ef að þið takið pásu þýðir það stopp fyrir konur.
Þá þurfa mennirnir að byrja frá byrjun. Ef að konan er byrjuð að
hitna, haltu þá áfram. Þú getur líka farið þér hægt á meðan þú
fullnægir henni. Það gefur bónus á endanum.
12. Klæða konuna
úr fötunum í vitlausri röð
Engin kona vill líta
asnalega út. Og maður lítur líka asnalega út þegar neðri
líkamshlutinn er nakinn en maður er ennþá klæddur í sokka og
peysu/bol.
13. Ráðast á
sköpin
Neðri kroppur konunnar er meira en eitt gat. Taktu þér tíma áður en
þú ræðst á það.
14. Nudda of
harkalega
Nudd getur alltaf skapað góða stemmingu. En skildu nuddaðferðina
frá nuddaranum þínum eftir heima. Ef að þú gengur of harkalega til
verks getur það dregið úr stemmningunni.
15. Vilja fá
konuna of fljótt úr fötunum
Ekki rífa hana úr fötunum.
Það getur vel verið að Michael Douglas hafi sloppið vel frá því í
erótískum spennumyndum sem að hann hefur leikið í. Taktu því
rólega. Hún hefur jú lagt sig fram um að líta vel út fyrir þig.
Hrósaðu henni fyrir fallegu undirfötin.
16. Fara fyrst úr buxunum
Röðin ætti
að vera: bolur, sokkar, og svo buxurnar. Aldrei öfugt! Það er
ekkert eins ósexý og karlmaður sem stendur á hvítu tennissokkunum
með "vininn" hangandi niður fyrir bolinn. Þetta atriði er
ekki hægt að leggja nógu mikla áherslu á!
17. Flýtir sér
of mikið
Gefðu henni tíma, ekki flýta þér eins og þú
eigir lífið að leysa. Hún mun gefa þér merki um þegar hún vill að
þú setjir allt á fullt.
18. Eru of
harðhentir í rúminu
Það fær henni til að líða eins og hún sé nýkomin úr tveggja vikna
reiðtúr, án hnakks!
19. Koma of
fljótt
Þetta er mjög algengt. Margir karlmenn koma of
fljótt, og þess vegna er gott að hafa B plan um hvernig þú getur
fullnægt henni.
20. Koma of
seint
Þetta er nýtt! Þú ert enginn sexgúrú, bara
af því að þú getur haldið út í tvo tíma án þess að "koma". Allt er
þreytandi til lengdar.
21. Spyrja hana
hvort að hún hafi "komið"
Annað hvort tekur þú eftir
því hvort að hún hafi fengið fullnægingu, annars "kom" hún
sennilega ekki. Ekki spyrja svona heimskulega.
22. Allt of
gætileg munnmök
Þú ert ekki lítill kettlingur sem að
lepur mjólkina í þig. Notaðu tunguna! Rúllaðu, víbraðu og gerðu
bylgjur með tungunni á snípnum á henni.
23. Þrýsta höfði
konunnar niður við munnmök
Nei konum líkar alls ekki að
láta þrýsta höfðinu á sér niður að getnaðarlim mannsins. Já, þetta
er gert í klámmyndunum og nei þetta "fílum" við alls ekki í
raunveruleikanum.
24. "Koma" í
munn konunnar
Sæði er á bragðið eins og saltvatn,
blandað með eggjahvítu. Það eru ekki allar konur sem að líkar þetta
bragð. Segðu til svo að hún nái að forða sér áður en þú "færð það"
upp í hana.
25. Hreyfa sig
órólega
Þegar hún "tottar" hann á þér, liggðu kyrr. Hún
mun sjá um allar nauðsynlegar hreyfingar.
26. Líkja eftir
klámmynd
Klámmyndir eru skemmtun en ekki námskeið í
kynlífi. Konur eru í raunveruleikanum ekki eins og þær sem að leika
í þessum myndum. Þú þarft ekki að glenna lappirnar á henni
svakalega út. Það þarf nefnilega ekki að vera pláss fyrir heilt
tökulið í klofinu á henni.
27. Láta konuna
vinna alla vinnuna
Að láta hana sitja ofan á er mjög
gott. En ekki í marga klukkutíma. Skiptist á að gera gott við hvort
annað, og breytið um stellingar.
28. Spyrja
konuna EKKI á undan hvort að hún vilji stunda
endaþarmsmök
Ein af þessum slæmu! Ef að þig langar til að stunda endaþarmsmök
spurðu hana þá fyrst. Það getur vel verið að hún segi já. Þú mátt
ekki bara gera ráð fyrir að hún vilji það. Og að segja að þú hafir
óvart villst í vitlaust gat, er bara út í hött að segja!
29. Taka
einkamyndir
Þegar þú spyrð: má ég taka nektarmyndir af
þér? Heyrir hún þig segja: sem ég get sýnt vinum mínum eða setja
þær á internetið. Láttu hana fá myndirnar og svo getið þið kíkt á
þær saman.
30. Eru of
hugmyndasnauðir
Þessar sömu tvær stellingar geta orðið
leiðinlegar. Reyndu eitthvað nýtt!
31. Eru oft
tæknilegir
Kama Sutra, tantrasex o.s.frv. Ef að hún
vill stunda jóga hefði hún sennilega farið á námskeið.
32. Gefa konunni
sogblett
Ertu 12 ára gamall? Allir sem svara þessari
spurningu neitandi hætta að gefa sogbletti á stundinni!
33. Tala "dirty"
í rúminu
Sumum líkar að láta tala "dirty" við sig í rúminu, öðrum líkar það
ekki. Spurðu hana hvort að hún "fíli" það.
34. Gefa
skipanir
Það er hægt að gera á margan hátt. Hún er hvorki hundur né
hermaður...
35. Halda að
allt sé yfirstaðið þegar hann er búinn að
"koma"
Sýningunni er ekki lokið fyrr er allir eru
fullnægðir. Það er ekkert verra en menn, sem halda að samræðinu sé
lokið, bara af því að þeir eru fullnægðir.
36. Þrýsta öllu
lofti út úr henni
Mundu að það eru miklar líkur á því
að þú sért mun þyngri en hún. Ef þú liggur lengi ofan á henni getur
andlitsliturinn hennar orðið bláleitur.
37. Þakka fyrir
sig eftir kynlíf
Hún stundar kynlíf af því að henni
langar til þess ekki til að þjónusta þig!
ÉG ER KOMIN Í SUMARFRÍ, HEF SVONA MIKIÐ AÐ GERA

KVEÐJA BEGGA